Fréttir
Poolmót GGT var haldið þann 14 nóv og var leikið í Snóker og Poolstofunni í Lágmúla, 14 manns sáu sér fært að mæta til keppni og var hópnum skipt upp í 2 riðla og léku því 7 keppendur í hvorum riðli og léku þar allir við alla í riðlunum.
Í öðrum riðlinum unnu keppendur hvorn annan á víxl en að lokum fór svo að þeir tveir sem náðu flestum vinningum voru þeir vinnufélagar úr Gróco Baldur og Ási og komust þeir því í undanúrslit, í hinum riðlinum var ekki eins mikil spenna þar sem Emil sigraði alla andstæðinga sína og flesta mjög örugglega honum fylgdi síðan Azam Khan sem vann allar sínar viðureignir nema á móti Emil.
Undanúrslit: Ási-Azam 1-0
Emil-Baldur 1-0
Eftir óslitna sigurgöngu Emils fram að þessu þurfti hann að keppa við Ása í úrslitum, Ási hafði átt misjöfnu gengi að fagna í sínum riðli þar sem hann tapaði tveim viðureignum og komst með herkjum áfram og þurfti að auki smá heppni með í undanúrslitaleiknum gegn Azam, en þegar að í úrslitin var komið sýndi Ási á sér allar sínar sparihliðar og vann Emi sannfærandi og batt þar með enda á langa sigurgöngu Emils.
Úrslit urðu því eftirfarandi
1. Ási 6 vinningar
2. Emil 7 vinningar
3. Azam 6 vinningar
4. Baldur 4 vinningar
5. Þorgeir 4 vinningar
6-9.Gústi 3 vinningar
6-9.Halli Hall 3 vinningar
6-9.Ívar 3 vinningar
6-9. Sif 3 vinningar
10-12.Haukur 2 vinningar
10-12.Rúnar 2 vinningar
10-12.Þura 2 vinningar
13.Þórður 1 vinningur
14 Hanna Júlía aðeins minna.