Fréttayfirlit
FRÉTTIR

Fréttir

Monday, January 05, 2009
Nýársávarp formanns
Nýársávarp formanns

Pistill formanns fyrir árið 2008.

 

Að venju hefur félagsstarf Golfklúbbs Guttorms tudda verið líflegt, og var árið 2008 engin undantekning frá fyrri árum.  Venjubundinni dagskrá hefur verið haldið úti auk þess sem GGT hélt í samvinnu við Golfklúbb Staðarsveitar minningarmót um okkar kæru vinkonu Gíslínu Erlendsdóttur.

Því móti verður gerð betri skil síðar í pistlinum.

 

Vetrardagskráin var að venju fjölbreytt þar sem félagsmenn stunduðu m.a. keilu, pool, félagsvist, pílu og badminton af hjartans list, þar sem flestir stóðu sig vel, en aðrir enn betur.

 

Sumarið einkenndist að mestu leyti af golfi enda er um golfklúbb að ræða í grunninn, þó svo að auðveldlega væri hægt að kalla félagsskapin átthagafélag þar sem grunnurinn eru gamalgrónir sveitamenn auk vina, ættingja og velgjörðarmanna.

Golfmótaröð sumarsins var að venju haldin á sjö mismunandi völlum vítt og breytt um vestanvert landið, að venju spilum við alltaf á einum nýjum velli hvert sumar og er þá reynt að finna völl sem engin félagsmaður hefur spilað á áður.

Í ár var valin völlurinn Glanni í Norðurárdal í Borgarfirði.

Golfsumarið var skemmtilegt og voru hápunktarnir án vafa háðir á Garðavelli í Staðarsveit.

Lokamót GGT og árleg viðureign okkar gegn GST var háð þar fyrstu helgina í september, það mót var að auki 10 ára afmælismót Golfklúbbs Staðarsveitar.

Mæting á mótið var afbragðs góð, auk félagsmanna GGT og GST mættu velunnarar frá golfklúbbum víðsvegar af Snæfellsnesi  auk þess sem menn úr stjórn GSÍ voru á staðnum.

Golfklúbbur Guttorms tudda vann óvæntan yfirburða sigur í viðureign GGT gegn GST á þessu ári og var það í fimmta skiptið á átta árum.

Árangur Egils Erlendssonar er eftirtektarverður á þessu móti en hann náði 44 punktum fyrir sína spilamennsku, sem er mjög fátítt og lagði þar grunn að góðum sigri GGT  

Einstaklingsúrslit frá mótinu má finna hér.

 

Minningarmót Gíslínu Erlendsdóttur.

Ekki bara golfmót heldur fjölskylduhátíð henni til heiðurs var haldin á Görðum í Staðarsveit um verslunarmannahelgina 2008 í fyrsta sinn.

Stefnt verður að árvissum viðburði þar sem vinir og ættingjar Gíslínu koma saman og njóta lífsins í góðu umhverfi og minnist okkar ástkæru vinkonu, þar sem hún sveiflaði kylfum svo oft.

Stjórn GGT í góðri samvinnu við Hauk formann GST og Kela staðarhaldara sáu um skipulagningu hátíðarinnar.

Strax og sú hugmynd um að halda minningarmót um Gíslínu kom til tals var ljóst að um mikinn áhuga hjá vinum og ættingjum var að ræða enda var Gíslína vinarík

og mikil fjölskyldukona, auðveldaði það strax mikið við skipulagningu þar sem allir voru tilbúnir að leggja sitt af mörkum og komu þ.a.l. margir að skipulagningunni.

Dagsskráin var svo hljóðandi “golf og ýmsir barna og fjölskylduleikir”, sem skildu ráðast af veðri og vindum.

Veðrið var betra en bjartsýnustu veðurguðir þorðu að vona, börn og fullorðnir léku sér t.d.við veiðar, fjöruferðir, sandkastlasmíðar, kayakróðra, göngutúrar, sundferðir og svo golf fyrir hina, og er þá fátt eitt talið upp.

Fullskipað var á golfmótið og færri komust að en vildu.

 

Það var engu líkara en að Gíslína hefði verið mætt til að velja þá sem sköruðu frammúr á þessu móti því sigurvegari varð sonur hennar Ásgeir.

Í öðru sæti varð Þór Jónsson sem sat með henni í stjórn GGT frá upphafi og í þriðja sæti Egill bróðir hennar.

Á kvöldin safnaðist mannskapurinn síðan saman á tjaldsvæðinu á Görðum við grill og varðeld og átti þar saman góðar stundir.

Úrslit og myndir frá minningarmótinu má finna hér og hér.

 

Nú hefst nýtt starfsár hjá GGT og fyrsti viðburður ársins verður félagsvist sem verður haldin þann 16 janúar.

 

Nýárskveðjur til ykkar allra.

Þorgeir.

HeimSpjalliðMyndirFréttayfirlitViðburðir