Fréttayfirlit
FRÉTTIR

Fréttir

Friday, January 16, 2009
Spilakvöld GGT tekið með trompi
Spilakvöld GGT tekið með trompi

Spilað var á 4 borðum á árlegu spilakvöldi GGT, föstudaginn 16. janúar síðastliðinn.  Því miður sáu meistarar síðasta árs sér ekki fært að mæta til að reyna að verja titla sína, svo það var ljóst áður en keppni hófst að nýir meistarar yrðu krýndir.  Setumeistari GGT, Ásta Ásadóttir, sat þó ekki heima, heldur mætti harðákveðin í að gera betur en í fyrra, þegar hún sat samtals í 8 umferðir á sama borðinu.  En þau áform gengu því miður ekki eftir þar sem hún náði aðeins sama árangri, 8 umferðir í sama stólnum.  Svo nú þarf Ásta aftur að sitja á strák sínum í eitt ár þar til næsta spilakvöld fer fram, og jafnvel að æfa zetur.  Við höfum trú á þér Ásta, við vitum að þú getur náð 9 umferðum.  Efstur í karlaflokki varð Þór með 180 stig, í kvennaflokki varð Hanna Júlía með 171 stig.  Skammar og setuverðlaun koma svo í hlut margumræddrar Ástu með 129 stig.

Nafn  

Stig

Lengsta seta
Þór
180 4
Hanna Júlía 171 3
Hilmar 167 4
Dagný 165 4
Helga 161 3
Þórður 160 5
Lára 158 4
Linda 157 5
Sveinn 157 5
Þórunn 155 4
Emil 155 4
Guðrún 154 6
Haraldur 151 5
Hjálmar 143 6
Þorgeir 133 4
Ásta 129 8
     
     
     
     

 

 

HeimSpjalliðMyndirFréttayfirlitViðburðir