Fréttir
Golfklúbbur Guttorms tudda og Golfklúbbur Staðarsveitar stóðu í sameiningu fyrir golfmóti á golfvellinum að Görðum í Staðarsveit, til minningar um vinkonu okkar og félaga Gíslínu Erlendsdóttur. Á mótið voru mættir rúmlega 20 golfarar og stundvíslega kl. 10:00 var ræst út af öllum teigum. Mótsfyrirkomulagið var punktakeppni, 18 holur með forgjöf. Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 3 sætin hjá körlum og konum, auk tveggja nándarverðlauna og lengsta upphafshögg á 7undu braut. Fyrstu 9 holurnar töldu einnig sem fjórða mót mótaraðar GGT. Skoða myndir frá Dagnýu