Fréttir
Þeir Egill og Palli voru að vísu í röngu liði þar sem þeir höfðu gengið í raðir Staðsveitunga sem sigraði lið GGT í árlegri sveitakeppni liðanna á golfvellinum í Staðarsveitinni. Frábærar aðstæður voru til golfiðkunar og til marks um það voru 7 kylfingar sem spiluðu til lækkunar á forgjöf. Þorgrímur Guðmundsson GST hlaut flesta punkta, alls 41 stk. en Þór Jónsson GGT lék á fæstum höggum eða 79 kvikindum.
Emil og Ingvar léku til úrslita í bikarkeppni GGT, þriðjudaginn 15 sept. í hundleiðinlegu veðri og leiðinda aðstæðum. En þeir létu það ekki aftra sér í því að spila 18 á Bakkakotinu. Úrslitin 28 punktar Ingvar gegn 21 punkti Emils
Þegar 1 mót er eftir á golfmótaröð GGT er ljóst að ekki verður keppt um horn þeirra Stássu og Guttorms í Staðarsveitinni þar sem Thelma hefur þegar tryggt sér nægilega mörg stig til að verja Stássuhornið. Þá er ljóst að enginn í karlahópnum getur velgt Baldri undir uggum. Hann er því réttmætur sigurvegari í höggleik karla árið 2009. Í punktakeppninni er einnig ljóst að ekki verða neinar breytingar á toppnum, Ingvar og Thelma hafa varið titla sína með forgjöf
Emil hafði góðan sigur á formanninum í undanúrslitum bikarkeppni GGT og er kominn í úrslit. Það er óhætt að segja að hann hafi gert út um vonir Þorgeirs strax á fyrri 9 holunum í Bakkakoti þar sem hann lék þær á aðeins 37 höggum (2 yfir pari). Emil lék seinni líka á góðu skori og landaði næsta auðveldum sigri. Í hinum undanúrslitaleiknum spiluðu Ási og Ingvar líka í Bakkakoti, í roki og rigningu. Sökum aðstæðna ákváðum þeir að láta 9 holur duga og eftir að hafa skipst nokkrum sinnum á 1 punkts forystu var Ási með 1 punkt fyrir lokaholuna. Ingvar sýndi snilldartilþrif á meðan Ási sló í bönker og jafnaði í 15-15 þannig að þeir spiluðum 4 holu bráðabana í enn verra veðri þar sem Ingvar sigraði örugglega.
Golfklúbbur Guttorms tudda og Golfklúbbur Staðarsveitar stóðu í sameiningu fyrir golfmóti á golfvellinum að Görðum í Staðarsveit, til minningar um vinkonu okkar og félaga Gíslínu Erlendsdóttur. Á mótið voru mættir rúmlega 20 golfarar og stundvíslega kl. 10:00 var ræst út af öllum teigum. Mótsfyrirkomulagið var punktakeppni, 18 holur með forgjöf. Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 3 sætin hjá körlum og konum, auk tveggja nándarverðlauna og lengsta upphafshögg á 7undu braut. Fyrstu 9 holurnar töldu einnig sem fjórða mót mótaraðar GGT.
Hjónakornin Ásgrímur og Dagný mættust í annarri umferð bikarkeppni GGT. Til að ekki kæmi til kærumála, og svo að enginn þyrfti að sofa á sófanum vegna ágreinings brugðu þau á það ráð að velja hvort sinn völlinn og spila 36 holur til úrslita. Fyrst mættu þau á Akranes þar sem Dagný var bjartsýn vegna þess að hún hafði áður haft sigur á Sæþóri á sama velli.
3ja mót mótaraðarinnar karlaflokki, var leikið á hinum glæsilega Kiðjabergsvelli í gær. Í upphafi rigndi ögn á keppendur en þegar rigningunni slotaði voru alveg kjöraðstæður til golfiðkunar, ef ekki hefði verið fyrir helvítis mýið. Veðrið var allavega dásamlegt, nánast algjört logn og engin sól enda léku þeir Ingvar, Baldur og Ási flott golf og skoruðu allir um 20 punkta á 9 holum sem þíðir bara ágætis lækkun á forgjöfinni þeirra. Aðrir voru ekki að finna sig eins, en allir nutu útiverunnar og félagsskaparins, enda ekki af verri endanum.
Fyrstu umferð bikarkeppni GGT er lokið og ljóst hverjir mætast í annari umferð. Á Kálfatjarnarvelli sló Thelma út hinn unga og efnilega Atla, mannsefni hennar, Ingvar, lagði svo Ingvar að velli á Kiðjabergi á sama tíma og Egill hafði betur gegn Lárusi. Þá hafði Ási betur gegn Rögnu í Vatnsleysunni, Dagný slátraði Sæþóri á Akranesi og nýliðinn Arnór sendi efsta manninn í mótaröðinni, Baldur, heim með skottið á milli lappanna frá Bakkakoti. Emil skildi Rúnar eftir í rykmekki á Oddfellow og sömuleiðis gerði Þorgeir við Þór í stjórnarslagnum.
Búið er að leika 2 mót á mótaröð GGT árið 2009. Það fyrra fór fram á Bakkakotsvelli en hið síðara á Þverárvelli hjá strákunum en í Hveragerði hjá stelpunum.
Staða og skor eftir fyrstu 2 mótin má sjá hér til vinstri en sundurliðað skor með því að smella á hlekkina hér að neðan.
Úrslit í 2ja kylfu móti
1. Þorgeir Einarsson (40) Sigraði Ingvar í 3ja holu umspili
2. Ingvar Jónsson (40) Tapaði fyrir Þorgeiri í 3ja holu umspili
3. Emil Jóhannsson (43)
4. Atli Kristbergsson (51)
5. Thelma Kvaran (52)
6. Hanna Hafsteinsdóttir (aðeins fleiri en hinir)
Badmintonúrslit
Þórður Kára og Ásgeirspabbi (gestur)
1. Kári Þórðarson
2. Ásgeir Þórðarson
3. Þór Jónsson
Spilað var á 4 borðum á árlegu spilakvöldi GGT, föstudaginn 16. janúar síðastliðinn. Því miður sáu meistarar síðasta árs sér ekki fært að mæta til að reyna að verja titla sína, svo það var ljóst áður en keppni hófst að nýir meistarar yrðu krýndir. Setumeistari GGT, Ásta Ásadóttir, sat þó ekki heima, heldur mætti harðákveðin í að gera betur en í fyrra, þegar hún sat samtals í 8 umferðir á sama borðinu. En þau áform gengu því miður ekki eftir þar sem hún náði aðeins sama árangri, 8 umferðir í sama stólnum.
Að venju hefur félagsstarf Golfklúbbs Guttorms tudda verið líflegt, og var árið 2008 engin undantekning frá fyrri árum. Venjubundinni dagskrá hefur verið haldið úti auk þess sem GGT hélt í samvinnu við Golfklúbb Staðarsveitar minningarmót um okkar kæru vinkonu Gíslínu Erlendsdóttur.
Því móti verður gerð betri skil síðar í pistlinum.
Vetrardagskráin var að venju fjölbreytt þar sem félagsmenn stunduðu m.a. keilu, pool, félagsvist, pílu og badminton af hjartans list, þar sem flestir stóðu sig vel, en aðrir enn betur.