Fréttayfirlit
FRÉTTIR

Fréttir

Thursday, June 10, 2010
Búið að draga í fyrstu umferð bikarkeppninnar
Búið að draga í fyrstu umferð bikarkeppninnar

Mótanefnd er búin að draga saman mótherja í fyrstu umferð bikarkeppninnar.  Vinsamlega parið ykkur saman hið fyrsta og ljúkið leik fyrir 24 júní.

Svona er staðan

Svona eru reglurnar
 

Meira...
Thursday, June 10, 2010
Mótaröðin 2. mót
Mótaröðin 2. mót

Fyrsta móti sumarsins var frestað um óákveðinn tíma, þess vegna lékum við annað mótið fyrst þetta árið.  Við byrjuðum sem sagt á því að leika nýliða ársins, Ásatúnsvöll sem er staðsettur einhversstaðar hátt uppi á suðurlands hálendinu.  Eftir að hafa keyrt þangað austur í hvoru tveggja rigningu og roki, ýmist bæði í einu eða sitt á hvað lentum við í þessari vin þar sem okkur tókst að ljúka 9 holu hring án þess að fá á okkur rigningu eða vind af nokkru ráði. 

Meira...
Tuesday, May 25, 2010
Mótaröð GGT sumarið 2010
Mótaröð GGT sumarið 2010

26 Maí: Hveragerði  9 holur
9 Júní: Ásatún 9 holur
23 Júní: Geysir 9 holur
10 Júlí: Minningarmót fyrir vestan 18 holur
21 Júlí: Borgarnes 9 holur   
11 Ágúst: Öndverðarnes 9 holur
4 Sept: Tuddamótið fyrir vestan 18 holur

Meira...
Monday, May 10, 2010
Úrslit í badminton
Úrslit í badminton

Kerlingar :

  1. Lísa
  2. Sif
  3. Erla

Karlar:

  1. Arnór
  2. Þór
  3. Sæþór
  4. Ágúst
  5. Aron
Meira...
Thursday, March 04, 2010
Félagsgjöld GGT 2010 (höldum félaginu á floti !!)
Félagsgjöld GGT 2010 (höldum félaginu á floti !!)

Nú er komið að því að greiða félagsgjöld GGT.  Félagsgjöldin eru nýtt í ýmiskonar viðburði yfir árið sem við reynum sem flest að taka þátt í, að sjálfsögðu.
Gjalddagi félagsgjaldanna er mánudagurinn 15. mars 2010 og hvet ég alla sem vettlingi geta haldið að borga og halda þessu skemmtilega félagi á floti. 

Meira...
Tuesday, February 09, 2010
Gönguplan GGG í vetur
Jæja, ekki seinna vænna en að senda ykkur uppkast af áætluninni fram á vorið. Höfum þetta til viðmiðunar en tillögur um aðra skemmtilega hluti vel þeg...
Meira...
Thursday, January 21, 2010
Viðburðir GGT vorið 2010
Góðir félagsmenn Vinsamlegast takið frá eftirfarandi dagsetningar fyrir viðburði GGT. 19. febrúar - Pool 19. mars - Píla 24 eða 25 apríl - babb...
Meira...
Sunday, January 10, 2010
Úrslit í félagsvist
Úrslit í félagsvist

Kerlingar :

  1. Sif = 182 stig
  2. Linda = 161 stig
  3. Anna = 160 stig
  4. Hrafnhildur = 148 stig
  5. Hanna = 147 stig
  6. Guðrún = 139 stig

Karlar :

  1. Gísli = 167 stig
  2. Þór = 166 stig
  3. Þórður = 161 stig
  4. Halldór = 154 stig
  5. Þura = 148 stig
  6. Hilmar140 stig

Lengsta seta Guðrún = 12 umferðir á sama borði.

Meira...
Thursday, October 08, 2009
Guttormar sigra í sveitakeppni GGT og GST
Guttormar sigra í sveitakeppni GGT og GST

Þeir Egill og Palli voru að vísu í röngu liði þar sem þeir höfðu gengið í raðir Staðsveitunga sem sigraði lið GGT í árlegri sveitakeppni liðanna á golfvellinum í Staðarsveitinni.  Frábærar aðstæður voru til golfiðkunar og til marks um það voru 7 kylfingar sem spiluðu til lækkunar á forgjöf.  Þorgrímur Guðmundsson GST hlaut flesta punkta, alls 41 stk. en Þór Jónsson GGT lék á fæstum höggum eða 79 kvikindum.

Meira...
Wednesday, October 07, 2009
Ingvar er bikarmeistari GGT
Ingvar er bikarmeistari GGT

Emil og Ingvar léku til úrslita í bikarkeppni GGT, þriðjudaginn 15 sept.  í hundleiðinlegu veðri og leiðinda aðstæðum.  En þeir létu það ekki aftra sér í því að spila 18 á Bakkakotinu.  Úrslitin 28 punktar Ingvar gegn 21 punkti Emils

Meira...
Thursday, August 13, 2009
Baráttan um hornin á enda
Baráttan um hornin á enda

Þegar 1 mót er eftir á golfmótaröð GGT er ljóst að ekki verður keppt um horn þeirra Stássu og Guttorms í Staðarsveitinni þar sem Thelma hefur þegar tryggt sér nægilega mörg stig til að verja Stássuhornið.  Þá er ljóst að enginn í karlahópnum getur velgt Baldri undir uggum.  Hann er því réttmætur sigurvegari í höggleik karla árið 2009.  Í punktakeppninni er einnig ljóst að ekki verða neinar breytingar á toppnum, Ingvar og Thelma hafa varið titla sína með forgjöf

Meira...
Monday, August 10, 2009
Emil og Ingvar keppa til úrslita í bikarkeppni GGT
Emil og Ingvar keppa til úrslita í bikarkeppni GGT

Emil hafði góðan sigur á formanninum í undanúrslitum bikarkeppni GGT og er kominn í úrslit.  Það er óhætt að segja að hann hafi gert út um vonir Þorgeirs strax á fyrri 9 holunum í Bakkakoti þar sem hann lék þær á aðeins 37 höggum (2 yfir pari).  Emil lék seinni líka á góðu skori og landaði næsta auðveldum sigri.
Í hinum undanúrslitaleiknum spiluðu Ási og Ingvar líka í Bakkakoti, í roki og rigningu.  Sökum aðstæðna ákváðum þeir að láta 9 holur duga og eftir að hafa skipst nokkrum sinnum á 1 punkts forystu var Ási með 1 punkt fyrir lokaholuna. Ingvar sýndi snilldartilþrif á meðan Ási sló í bönker og jafnaði í 15-15 þannig að þeir spiluðum 4 holu bráðabana í enn verra veðri þar sem Ingvar sigraði örugglega.

 

 

Meira...
Friday, July 31, 2009
Nú líður að lokum mótaraðar GGT árið 2009
Nú líður að lokum mótaraðar GGT árið 2009 Þegar aðeins 2 mót eru eftir í golfmótaröð GGT hafa þeir Baldur, Ingvar og Sæþór ennþá tölfræðilega möguleika á að tryggja sér Guttormshornið 2009. &#...
Meira...
Monday, July 06, 2009
Minningarmót Gíslínu var haldið öðru sinni 11. júní
Minningarmót Gíslínu var haldið öðru sinni 11. júní

Golfklúbbur Guttorms tudda og Golfklúbbur Staðarsveitar stóðu í sameiningu fyrir golfmóti á golfvellinum að Görðum í Staðarsveit, til minningar um vinkonu okkar og félaga Gíslínu Erlendsdóttur.  Á mótið voru mættir rúmlega 20 golfarar og stundvíslega kl. 10:00 var ræst út af öllum teigum.  Mótsfyrirkomulagið var punktakeppni, 18 holur með forgjöf.  Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 3 sætin hjá körlum og konum, auk tveggja nándarverðlauna og lengsta upphafshögg á 7undu braut.  Fyrstu 9 holurnar töldu einnig sem fjórða mót mótaraðar GGT.

Meira...
Wednesday, July 01, 2009
Ási lagði Dagný á Skaganum, og svo aftur í Holtinu
Ási lagði Dagný á Skaganum, og svo aftur í Holtinu

Hjónakornin Ásgrímur og Dagný mættust í annarri umferð bikarkeppni GGT.  Til að ekki kæmi til kærumála, og svo að enginn þyrfti að sofa á sófanum vegna ágreinings brugðu þau á það ráð að velja hvort sinn völlinn og spila 36 holur til úrslita.  Fyrst mættu þau á Akranes þar sem Dagný var bjartsýn vegna þess að hún hafði áður  haft sigur á Sæþóri á sama velli. 

Meira...
Wednesday, June 24, 2009
3ja móti mótaraðar GGT lokið
3ja móti mótaraðar GGT lokið

3ja mót mótaraðarinnar karlaflokki, var leikið á hinum glæsilega Kiðjabergsvelli í gær.  Í upphafi rigndi ögn á keppendur en þegar rigningunni slotaði voru alveg kjöraðstæður til golfiðkunar, ef ekki hefði verið fyrir helvítis mýið.  Veðrið var allavega dásamlegt, nánast algjört logn og engin sól enda léku þeir Ingvar, Baldur og Ási flott golf og skoruðu allir um 20 punkta á 9 holum sem þíðir bara ágætis lækkun á forgjöfinni þeirra.  Aðrir voru ekki að finna sig eins, en allir nutu útiverunnar og félagsskaparins, enda ekki af verri endanum.

Meira...
Wednesday, June 24, 2009
Fyrstu umferð bikarkeppni GGT lokið
Fyrstu umferð bikarkeppni GGT lokið

Fyrstu umferð bikarkeppni GGT er lokið og ljóst hverjir mætast í annari umferð.  Á Kálfatjarnarvelli sló Thelma út hinn unga og efnilega Atla, mannsefni hennar, Ingvar, lagði svo Ingvar að velli á Kiðjabergi á sama tíma og Egill hafði betur gegn Lárusi.  Þá hafði Ási betur gegn Rögnu í Vatnsleysunni, Dagný slátraði Sæþóri á Akranesi og nýliðinn Arnór sendi efsta manninn í mótaröðinni, Baldur, heim með skottið á milli lappanna frá Bakkakoti. Emil skildi Rúnar eftir í rykmekki á Oddfellow og sömuleiðis gerði Þorgeir við Þór í stjórnarslagnum. 

Meira...
Tuesday, June 16, 2009
Golfmótaröð 2009 er komin af stað
Golfmótaröð 2009 er komin af stað

Búið er að leika 2 mót á mótaröð GGT árið 2009.  Það fyrra fór fram á Bakkakotsvelli en hið síðara á Þverárvelli hjá strákunum en í Hveragerði hjá stelpunum.  

Staða og skor eftir fyrstu 2 mótin má sjá hér til vinstri en sundurliðað skor með því að smella á hlekkina hér að neðan.

Meira...
Monday, May 25, 2009
2ja kylfu mót
2ja kylfu mót

Úrslit í 2ja kylfu móti

1.  Þorgeir Einarsson (40)   Sigraði Ingvar í 3ja holu umspili

2. Ingvar Jónsson (40)  Tapaði fyrir Þorgeiri í 3ja holu umspili

3. Emil Jóhannsson (43)

4. Atli Kristbergsson (51)

5. Thelma Kvaran (52)

6. Hanna Hafsteinsdóttir (aðeins fleiri en hinir)

Meira...
Saturday, April 25, 2009
Badminton 2009
Badminton 2009

Badmintonúrslit

Þórður Kára og Ásgeirspabbi (gestur)

1. Kári Þórðarson

2. Ásgeir Þórðarson

3. Þór Jónsson

Meira...
Tuesday, March 03, 2009
Pílugleði GGT
Pílugleði GGT

  Pílugleði GGT fór fram þann 20. feb, í húsakynnum Landssteina Strengs í Ármúla.

Keppendur voru mun fleiri en síðustu ár eða 18 talsins, flestir gamalkunnir tuddar en einnig komu nokkrir úr hinu vaska pílukastliði GGT.

Meira...
Friday, January 16, 2009
Spilakvöld GGT tekið með trompi
Spilakvöld GGT tekið með trompi

Spilað var á 4 borðum á árlegu spilakvöldi GGT, föstudaginn 16. janúar síðastliðinn.  Því miður sáu meistarar síðasta árs sér ekki fært að mæta til að reyna að verja titla sína, svo það var ljóst áður en keppni hófst að nýir meistarar yrðu krýndir.  Setumeistari GGT, Ásta Ásadóttir, sat þó ekki heima, heldur mætti harðákveðin í að gera betur en í fyrra, þegar hún sat samtals í 8 umferðir á sama borðinu.  En þau áform gengu því miður ekki eftir þar sem hún náði aðeins sama árangri, 8 umferðir í sama stólnum.

Meira...
Monday, January 05, 2009
Nýársávarp formanns
Nýársávarp formanns

Að venju hefur félagsstarf Golfklúbbs Guttorms tudda verið líflegt, og var árið 2008 engin undantekning frá fyrri árum.  Venjubundinni dagskrá hefur verið haldið úti auk þess sem GGT hélt í samvinnu við Golfklúbb Staðarsveitar minningarmót um okkar kæru vinkonu Gíslínu Erlendsdóttur.

Því móti verður gerð betri skil síðar í pistlinum.
 

Vetrardagskráin var að venju fjölbreytt þar sem félagsmenn stunduðu m.a. keilu, pool, félagsvist, pílu og badminton af hjartans list, þar sem flestir stóðu sig vel, en aðrir enn betur.

Meira...
Friday, November 14, 2008
Poolmót 2008
Poolmót 2008

Poolmót GGT var haldið þann 14 nóv og var leikið í Snóker og Poolstofunni í Lágmúla, 14 manns sáu sér fært að mæta til keppni og var hópnum skipt upp í 2 riðla og léku því 7 keppendur í hvorum riðli og léku þar allir við alla í riðlunum.  Í öðrum riðlinum unnu keppendur hvorn annan á víxl en að lokum fór svo að þeir tveir sem náðu flestum vinningum voru þeir vinnufélagar úr Gróco Baldur og Ási og komust þeir því í undanúrslit,

 
 
Meira...
Friday, October 17, 2008
Baldur selur golfkylfurnar og íhugar atvinnumennsku í keilu
Baldur selur golfkylfurnar og íhugar atvinnumennsku í keilu
Baldur Ingólfsson fór hreinlega á kostum í seinni umferð á keilumóti GGT, eftir að hafa rétt slefað yfir 100 stiga múrinn í fyrri umferð var hann alls ekki líklegur til verðlauna, en honum héldu engin bönd í seinni umferð eins og áður segir.  Hann skoraði hvorki meira né minna en 200 stig og landaði 1. sæti.  Annað eins hefur aldrei sést á keilumótum GGT
Meira...
Tuesday, September 23, 2008
Nýtt nafn á Stássuhornið
Nýtt nafn á Stássuhornið
Thelma Kvaran kom sá og sigraði Stássuhornið árið 2008 eins og fréttaritari GGT spáði fyrir um eftir mót í Borgarnesi í fyrra.  Aðeins 3 stúlkur sáu sér fært að spila á mótaröðinni að þessu sinni, en einungis þær systur Ragna og Thelma náðu að ljúka 3 mótum, þar sem Thelma hafði betur, hlaut 60 stig, en Ragna náði að hala inn 58 stigum.  Sömu sögu er að segja af úrslitum með forgjöf í kvennaflokki. nema hvað Ragna vann sér inn 60 stig, en Thelma hefur sigur með betri árangur á 4ða móti.  3. stúlkan sem hóf keppni heitir Gabriela, en þrátt fyrir góða byrjun spilaði hún aðeins á einu móti með okkur.
Meira...
Saturday, September 06, 2008
Sveitamenn sigraðir á afmælisári
Sveitamenn sigraðir á afmælisári

Golfklúbbur Guttorms tudda sigraði góðglaða Staðsveitunga með algjörum yfirburðum í árlegri sveitakeppni GGT og GST  þetta árið. 
  Golfklúbbur Staðarsveitar hélt uppá 10 ára afmæli sitt á árinu og bauð af því tilefni til veglegs afmælismóts, þar sem margir velunnarar klúbbsins tóku þátt og héldu upp á áfangann með félagsmönnum, og skemmtu sér jafn á golfvellinum sjálfum, sem og í stórkostlegum kvöldverði að hætti Rúnars Marvinssonar í veitingasal Gistihússins Langaholts.  
 

Meira...
Wednesday, August 20, 2008
Egill er bikarmeistari 2008
Egill er bikarmeistari 2008 Egill og Halli Guðjóns gerðu út um bikarúrslitaleikinn á Kálfatjarnarvelli í Vatnsleysustrandarhreppi einn góðviðrisdag um miðjan ágúst.  Þeir spiluðu 9 holur þar sem Egill hafði betur 15-11.

Hér má sjá hvernig keppnin þróaðist:
Meira...
Friday, August 15, 2008
Nýjar holur á Öndverðarnesi
Nýjar holur á Öndverðarnesi

Heldur virðist hann nú þynnast hópurinn sem tekur þátt í mótum i mótaröð GGT eftir því sem líður á sumarið.  En siðasta mótið fyrir sveitakeppni GGT-GST var spilað á nýjum 9 holum velli á Öndverðarnesi um miðjan ágúst.  Völlurinn lofar mjög góðu og það verður mjög gaman að spila hann nú eftir fyrsta hring þegar maður er búinn að kynnast lengdum og blindum hornum sem eru nokkur á honum.

Skor

Staðan

Meira...
Wednesday, August 13, 2008
Baldur í feiknaformi á meistaramóti GKG
Baldur í feiknaformi á meistaramóti GKG

Baldur Ingólfsson sem er einn af stofnfélögum og frammámönnum GGT náði eftirtektarverðum árangri í meistaramóti GKG núna í júlí. Hann náði þar öðru sæti á 99-99-97 höggum í sínum forgjafarflokki eftir að hafa leitt móti' á öðrum degi. Í fljótu bragði muna elstu menn ekki eftir að GGT félagi hafi náð sambærilegum árangri en hafa verður í huga að þetta er næst stærsi golfklúbbur landsins.

 

Meira...
Monday, August 11, 2008
Egill fær annan séns á bikarnum
Egill fær annan séns á bikarnum Egill spilar í ár bikarúrslitaleik við Harald Guðjónsson, en þetta er annað árið í röð sem Egill kemst í úrslit, í fyrra tapaði hann naumlega fyrir Þór, en Halli sló hann einmitt út í síðustu umferð.  Það er því von á hörkuspennandi úrslitaleik, og ljóst að nýr bikarmeistari verðu krýndur í ár.
Meira...
Saturday, August 02, 2008
Minningarmót
Minningarmót Hérna ætlar Þorgeir að skrifa pistil um hvað þetta var frábært mót, veðrið yndislegt og allt einstaklega vel heppnað.  Halli Guðjóns ætlaði líka ...
Meira...
Tuesday, July 22, 2008
Kálfatjörn
Kálfatjörn

Það var rok, nema hvað.  Eða Suðurnesjablíða eins og þeir kalla það gárungarnir.  En það á nú örugglega bara eftir að koma sér vel að hafa fengið smá vindæfingu fyrir komandi átök í Staðarsveitinni þar sem lognið er þekktast fyrir að vera á töluverðri hreyfingu.  En þrátt fyrir blessaða goluna gekk flestum bara bærilega að glíma við völlinn og alltaf endaði kúlan ofaní holunni. 


Meira...
Wednesday, July 09, 2008
Glannalegt á Glanna
Glannalegt á Glanna

8 vaskir kylfingar og einn "kaddy" mættu á Glanna, nýjan níu holu golfvöll fyrir neðan Bifröst í Borgarfirði. Skorið var slæmt hverju sem um er að kenna, völlurinn er ekki með háan erfileikastöðul en ef þú ert ekki þráð beinn á teig þá finnur þú boltann þinn ekki aftur.

Meira...
Friday, June 27, 2008
Fyrstu umferð bikarkeppni GGT lokið
Fyrstu umferð bikarkeppni GGT lokið

Fyrstu umferð bikarkeppni GGT er lokið og enn höfum við syndgað upp á tímamörkin við takmarkaða hamingju sumra okkar ágætu félaga sem vilja að leikið sé eftir þeim reglum sem settar eru við upphaf móts.  Við viljum hins vegar ekki vera svo niðurnjörvuð við regluverkið að enginn slaki sé til breytinga ef við á en framvegis viljum við eindregið beina þeim tilmælum til þátttakanda að ljúka leik á tilsettum tíma. 

Meira...
Thursday, June 26, 2008
3. mót mótaraðar - Grindavík
3. mót mótaraðar - Grindavík

Golf í Grindavík! Já það hljómar eins og "rok og rigning" en við byrjuðum að hittast á N1 í Hafnarfirði og þar mættu nokkrir...hefði verið flott að fá fleiri en eins og stundum er sagt að það var fámennt en góðmennt :) Við mættum þarna þessi flotti hópur og viti menn það var bongó blíða í Grindavíkinni.. já sumar og sól bara og allir í frábæru skapi og stuð á fólki. Allir spiluðu vel og ílla þannig að allir voru bæði sáttir og ósáttir.

Næsta mót sem er  4. mót mótaraðarinnar verður haldið á velli sem aldrei hefur verið spilaður áður í mótaröð GGT.  Þetta árið er það Paradísarvöllurinn við Glanna í Norðurárdal sem við viljum kynna til sögunnar.  Hittingur við Shell Vesturlandsveg kl. 17:00.

 

Vonar maður að það verði met þáttaka því nú ætla allir að sjá nýjasta völlinn á landinu Hlakka til að sjá sem flesta

Úrslitin urðu sem hér segir:

Úrslit

Staðan

Meira...
Wednesday, June 11, 2008
Mótaröðin á Selfossi
Mótaröðin á Selfossi

Nokkuð góð mæting var á Selfossvöll þriðjudagskvöldið 10 júní, 14 spilarar mættu til leiks og flestir voru nokkuð langt frá sínu besta. Það er ekki algengt að sjá jafn marga topp spilara með í kringum eða undir 10 punktum.....:-)

 

Meira...
Tuesday, May 27, 2008
Og við rúllum af stað
Og við rúllum af stað

Suðurnesjablíðan hafði lítil sem engin áhrif á spilagetu Guttorma þegar golfmótaröð sumarsins rúllaði af stað á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.  Vindmetrarnir 10 úr suðaustri náðu í besta falli að kalla fram roða í kinnar og enn hraustlegra útlit á vaskri sveit manna og kvenna sem saman voru komin suður með sjó til að spila golf. 

Meira...
Saturday, May 24, 2008
Formaðurinn fer vel af stað
Formaðurinn fer vel af stað

Þorgeir Einarsson, formaður GGT fór heldur betur vel af stað inn í golfsumarið 2008.  Hans fyrsta högg á fyrsta móti ársins, tveggja kylfu mótinu, endaði á holubarminum.  Hefði kúlan verið ca. 2 cm lengra til hægri þegar hún stoppaði hefði hann hafið leik með draumahöggi allra kylfinga, holu í höggi.  En það er nú svona með allt þetta ef og hefði, betur má ef duga skal, og nú hefur Toggi dagana sem eftir lifa sumars til að bæta sig um 2 sentimetra. 

 

Meira...
Wednesday, May 21, 2008
Fyrsta leik bikarkeppni 2008 lokið
Fyrsta leik bikarkeppni 2008 lokið

Fyrsti leikur fyrstu umferðar bikarkeppni GGT var leikinn á Bakkakotsvelli í gær.  Þar áttust við þau Ragna Kvaran og "nýliðinn" Atli Kristbergsson.  Leiknar voru 9 holur þar sem Ragna hafði betur 13 punkta gegn 8 hjá Atla. 

Meira...
Friday, May 16, 2008
Bikarkeppni 2008
Búið er að draga í fyrstu umferð bikarkeppni GGT, og hvetjum við fólk til að melda sig saman fljótlega en geyma það ekki fram á síðasta dag að ljúka sínum leik.  Hér að neðan má sjá hverjir pöruðust saman:


Meira...
Wednesday, May 07, 2008
Uppskeruháðíð GGT
Uppskeruháðíð GGT

Uppskeruhátíð GGT fór fram þann 30 apríl í Ljónaklúbbhúsinu í Sóltúni.

Meira...
Saturday, April 12, 2008
Eru engar fréttir góðar fréttir?
Eru engar fréttir góðar fréttir?

Það er nú spurningin.  Það telst til dæmis ekki fréttnæmt að Kári rúllaði upp karlaflokknum í hnitmóti GGT sem haldið var í  húsakynnum TBR, en spurningin lifir, eru það góðar fréttir?  
   Spennan var öll í kvennaflokknum þar sem spiluðu til úrlsita Ragna Kvaran og Guðlaug Gísladóttir.  Fyrirkomulaginu frá fyrri árum var aðeins breytt þar sem töluvert færri skráðu sig til leiks en undanfarið.  Þannig voru engir tvíliðaleikir leiknir, heldur léku allir við alla í einliðaleik, skipt í kvenna og karlaflokk.  Þær/þeir 2 sem unnu flesta leiki í þessum leikjum léku einn úrslitaleik um fyrsta sætið.

Meira...
Saturday, March 29, 2008
Nú stóð það tæpt!
Nú stóð það tæpt!

Minnstu mátti muna að nýr pílumeistari ritaði nafn sitt í pílumótssögu GGT, en aðeins 2 stig skildu að efsta og næsta mann þegar pílumót GGT árið 2008 var haldið í húsakynnum Landsteina Strengs, Ármúla 7.  
   Pílumót hafa verið haldin á vegum GGT samfellt frá árinu 2002, og öll árin hefur sami aðilinn,

Meira...
Friday, February 15, 2008
Ballskák, bald-skák eða bara skalla-skák
Ballskák, bald-skák eða bara skalla-skák Allavega er hann sköllóttur kallinn sem hafði sigur á poolmóti GGT.  Emil heitir hann Jóhannsson sem hafði betur gegn Ingvari, í hörkuspennandi ú...
Meira...
Tuesday, January 15, 2008
Parað saman í efstu og neðstu sætin
Parað saman í efstu og neðstu sætin

Á fjölmennu spilakvöldi kom það í hlut tveggja para að setjast í efstu og neðstu sæti.  Hjónaleysin Þorgeir og Sif þurftu að sætta sig við neðstu sætin í karla og kvennaflokki á meðan Þura og Rúnar fögnuðu sigri.  Setuverðlaun komu svo í hlut þeirra Svavars og Ástu Maríu, hvort um sig sat 8 umferðir samfellt á sama borði.

Meira...
Friday, January 04, 2008
Ferðasaga frá Ása og Dagný
Ferðasaga frá Ása og Dagný

Fyrsta golfferðin til Spánar.

Mér fannst tilvalið að setja nokkrar línur á blað og deila með ykkur GGT félögum myndum og lýsingu af skemmtilegri golfferð sem við Dagný fórum til Costa Ballena um miðjan oktober.

Við ákváðum í júlí ásamt vinafólki okkar  sem er eins og við í Golfklúbbi Bakkakots að um haustið  væri kominn tími á golfferð, biðum ekki boðana og fjárfestum í ferð til Costa Ballena á Spáni, ótakmarkað golf  frá miðvikudegi til miðvikudags.

Meira...
Sunday, December 02, 2007
Margir í keilu
Margir í keilu

Vetrardagskránni startað með keilumóti í Öskjuhlíð.

Ungstirnið Thelma Kristín Kvaran kom sá og sigraði á keilumótinu í Öskjuhlíðinni með þvílíkum tilþrifum að annað eins hefur ekki sést, hvorki fyrr né síðar.  Hún gerði sér lítið fyrir og skoraði samtals 292 stig í 2 umferðum, og varð þarmeð lang hæst allra keppanda.  Næsthæsta skori náði svo kærastinn hennar, Ingvar, sem með 277 stig sigraði karlaflokkinn.  Þess má geta til gamans að flest stig til þessa á keilumóti á vegum GGT skoraði Ásgeir árið 2005, 271 stig.

Meira...
Saturday, December 01, 2007
Vefurinn uppfærður
Vefurinn uppfærður GGTgolf.com vefurinn er í uppfærsluferli og verður því hálf götóttur næstu dagana/vikurnar.  Fer allt eftir því hvað heimasíðuritari verður iðinn...
Meira...
Monday, October 01, 2007
Bikarmeistari 2007
Bikarmeistari 2007

Fyrsti bikarmeistari GGT

Úrslitaleikur bikarkeppni GGT var spilaður í Mýrinni, 9 holu golfvelli Kópavogs og Garðabæjar i ljúfu haustveðri, sama dag og Yoko Ono tendraði ljósin á friðarsúlunni í Viðey.  Það voru þeir Egill og Þór sem höfðu rutt úr vegi öllum öðrum keppendum á leið sinni að toppnum.  Egill byrjaði á því að velta við sjálfum formanninum, Þorgeiri tudda.  Þá vann hann Ása í annarri umferð, og loks nýkrýndum Guttormshornshafa, Sæþóri, í undanúrslitum.  
  

Meira...
HeimSpjalliðMyndirFréttayfirlitViðburðir