Fréttir
3ja mót mótaraðarinnar karlaflokki, var leikið á hinum glæsilega Kiðjabergsvelli í gær. Í upphafi rigndi ögn á keppendur en þegar rigningunni slotaði voru alveg kjöraðstæður til golfiðkunar, ef ekki hefði verið fyrir helvítis mýið. Veðrið var allavega dásamlegt, nánast algjört logn og engin sól enda léku þeir Ingvar, Baldur og Ási flott golf og skoruðu allir um 20 punkta á 9 holum sem þíðir bara ágætis lækkun á forgjöfinni þeirra. Aðrir voru ekki að finna sig eins, en allir nutu útiverunnar og félagsskaparins, enda ekki af verri endanum. Stelpurnar spiluðu sína umferð í Vatnsleysunni á mánudaginn. En í stelpnaflokki er hörkuspenna á toppnum þar sem Dagný og Thelma hafa lokið 3 mótum. Næstu 2 umferðir varpa so réttara ljósi á stöðuna þegar fleiri ná að ljúka sínu 3ja móti og skila inn stigum, eftir það þarf hver að reyna að bæta sinn 3ja besta árangur til að hækka á listanum.
Úrslit stelpur
Úrslit karlar
Name (required)
Email (required)
Website
Notify me of followup comments via e-mail
Kurling Golfmyndir.is Golf.is Golfkennsla.is Golfklúbbur Staðarsveitar