Fram hefur komið hugmynd að hópurinn fari saman í golfferð sumarið 2009. Okkur langar að heyra frá sem flestum hvort þeir hafi áhuga á að fara með í svoleiðis ferð, hvað hún ætti að taka langan tíma, hvort ætti að sameina golf og fjölskylduferð, hvert ætti að fara, hvenær, og hvað hún má kosta.
Að tilefni golfferðapistils frá Ása og fyrirhugaðrar golfferðar GGT 2009, í hvaða löndum hefur fólk spilað golf og hvar líkaði því best?
Vonandi til að koma umræðunni af stað, http://www.spanaribudir.is/?mod=sidur&mod2=view&id=23 kannski svolítið dýrt, en það er örugglega hægt að finna eitthvað sem hentar okkur.
http://www.evesta.is/Search-vacation-rentals/Results.aspx?re=0&ci=0&ro=0&sl=0&ba=0&pi=0&ps=20&so=0&th=golf&pf=0&pt=0&sd=2008-01-08
Gæti verið sniðugt að leigja íbúðir á Spáni, eða einhvers staðar annarsstaðar þar sem golfvöllur er nálægt. Alla vegana heillar Spánn mest! Örugglega hægt að finna velli nær og ódýrari.
Ég hef spilað Golf á Spáni á velli sem heitir Villamartin og hann er mjög fínn, spurning hvort það er of heitt þarna fyrir þá sem þola sólina og hitann ílla.. en allavega frábært að spila þarna. Hef einnig prófað að spila í Svíþjóð og það er mjög fínt en held að það sé erfitt að komast að þar..
kv. Sæþór
Ég spilaði í fyrra í Svíþjóð á 2 völlum sem heita Arlandastad golf, gamli og nýji völlur. Þar var ekkert mál að komast að og vellirnir bara flottir. Ég hef líka spilað í Danmörku á mörgum skemmtilegum völlum aðallega niður á Lálandi og á Falster. Þá hef ég líka spilað norðarlega í Bretlandi (rétt hjá Newcastle) og í Skotlandi. Í öllum þessum löndum er hægt að finna flotta velli á fínu verði og gistingu á mjög hóflegu verði, en þar er alltaf þessi óvissa með veður. Þó að það sé stutt og þægilegt að fljúga til þessara landa þá hafa suðlægari löndin það framyfir að það er nánast hægt að ganga að bongóblíðunni vísri. Skemmtilegasti völlur sem ég hef spilað á er á Kýpur og heitir Aphrodite Hills og þar er líka frábært umhverfi og nóg um að vera, mikil saga í landinu, og hellingur að sjá og skoða, en því miður svolítið langt flug. Á Kanarý hef ég líka spilað skemmtilegan völl sem heitir Salobre, sem gaman væri að heimsækja aftur, og á Miami spilaði ég hinn fræga Doral "Blue monster", en hann er fokdýr og ætti bara að heimsækjast svona spari. En öll umgjörð í kringum hann er hin glæsilegasta, enda margverðlaunað svæði með 5 18 holu völlum. En hvað finnst ykkur, ætti að stefna að því að þessi ferð sem fyrirhuguð er á vegum GGT verði fjölskylduferð með golfívafi, eða hreinræktuð golfferð þar sem spilað er að minnsta kosti 18 holur á dag?
Fjölskyldugolfferð og golfferð fyrir þá sem nenna ekki í fjölskylduferð...bara allir velkomnir er það ekki bara