Hæ hæ!
Langaði aðeins að spyrjast fyrir hvernig sumarið leggst í mannskapinn?
Eru menn/konur með áform um að lækka forgjöfina í sumar........
Ég var sjálfur að spá hvort maður gæti ekki reynt að aulast til að lækka eitthvað,,, það væri geðveikt gaman, Ég hef hækkað í fogjöf síðustu 2 ár og er kominn tími á að lækka þetta árið :)
Annars hafið það gott á þessu frábæra sumri sem er framundan
kv. Sæþór
Verð nú að segja frá þessu..tók þátt í golfmóti í gær 29.05.08 og náði þar 37 punktum og lækkaði mig í forgjöf...fór úr 18,1 í 17,8 Jíbíiiiiiiiii
Jæja nú vill ég fá að heyra fleiri svona HETJUSÖGUR :)
kv. VARAFORMAÐURINN
Ég skil þetta ekki....nú er ég búinn að spila nokkuð marga hringi síðan ég náði þessum 37 punktum og ég er kannski að ná hámark 30 punktum...og niður í 19 punkta...
Hvernig er ykkur að ganga að ætla sér að fara niður í forgjöf???